Frábær frammistaða - takk fyrir fræknu frænkur

CIMG0412-1Við vorum að koma heim, ég og guttinn, ég úttroðinn af dýrindis hnallþórum og súkkulaði, og Bjarni Haukur einni barnatönninni fátækari, en hún hrökk úr með aðstoð sykurmola í hita leiksins.

Ég verð nú að segja að maður fattaði það loksins þegar maður var mættur, hvað maður hefur saknað margra (allra!) og hvað það er nú gott fyrir sálartetrið að finna hvað maður er nú ríkur í raun og veru.  Ég vil nota þennan nýstofnaða vettvang til að hvetja stórfjölskylduna í að gera þetta að árvissum viðburði, hvort sem yfirskriftin verði sú Ísfirska hefð: Sólarkaffi,  eða bara hvað sem er.. aðalatriðið er að hittast og hafa gaman af.

Fræknu frænkurnar síbrosandi fá svo sérstakan plús fyrir framtakið - það er allveg með ólíkindum hvað þessar skvísur geta gert þegar þær taka höndum saman...

Takk fyrir mig og mína

Bjarni "stóri" 


Myndir af fjsk.

Takk fyrir Elfa, frábært að sjá þessar myndir sem komnar eru.Verður gaman þegar aðrir meplimir taka við sér, ekki ég verð að fá smákennslu, en bráðum. Hjödda


Metþátttaka á Jólaballi

Hæ hæ!  Í gær komu saman Hjödda, Peta, Erna og Elfa og fóru yfir stöðu mála varðandi þátttöku á jólaballi.  Það lítur út fyrir að þátttaka verði mjög góð og hlökkum við til að hitta alla.  Svona fyrir þá sem eru ekki með allt á hreinu þá verður ballið haldið í kiwanishúsinu í Kópavogi sunnudaginn 7. janúar kl. 15.30-18.00.

Fyrsta bloggfærsla

Hæ frændur og frænkur.  Velkomin á fjölskyldubloggið.  Ákvað að tékka á mogga blogginu og finnst kerfið þeirra mun betra en á blogcentral. Hér er miklu auðveldara að setja inn myndir o.fl. og stillingar skýrari. Vona að allir séu sáttir við breytinguna. Ef þið lendið í vandræðum þá sendið mér  póst. Kv. Elfa ebo@simnet.is  P.s Lykilorð og notendanafn er sama og áður.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband