Fjölskyldublogg
Afi Guðmundur Kr. Guðmundsson, skipstjóri fæddist í Stakkadal í Aðalvík 15. ágúst 1897. Amma Sigurjóna Guðmundína Jónasdóttir, húsfreyja fæddist á Sæbóli í Sléttuhreppi 14. janúar 1903. Þau hjónin bjuggu allan sinn búskap á Ísafirði lengst af í Aðalstræti 26a. Amma og afi giftu sig þann 26. desember árið 1926. Amma lést þann 9. september 1954 en afi þann 12. janúar 1961. Flest okkar barnanarnanna fengum því miður ekki að kynnast afa og ömmu af eigin raun en foreldrar okkar hafa séð til þess að halda minningu þeirra og sögu á lofti.
Færsla: Elfa færði inn