Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Afmælisboð frá Jónu Sverris
25.3.2009 | 20:28
Peta orðin amma
19.9.2008 | 21:59
Já Peta orðin amma og ekkert smá stolt Íris átti lítinn yndislegan strák 6. september og var hann tæpar 12 merkur og 49 cm. hann kom reyndar í heiminn 15 dögum fyrir tímann en er samt rosa duglegur og sterkur eins og sannur vestfirðingur. Þið getið skoðað litla prinsinn á heimasíðunni hans eythorsson.barnaland.is Ég sendi aðgangsorðið að síðunni í pósti til ykkar og munið að kvitta í gestabókina, það er svo skemmtilegt að fá kveðjur
Kv. Elfa
Vinir og fjölskylda | Breytt 22.9.2008 kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gunna frænka
26.8.2008 | 10:26
Mikið er ég ánægð með framtakið hennar Gunnu sl. laugardag þar sem við hittumst í hádegisverði frænkurnar. Þetta var allt svo smart hjá henni og alveg æðislegt að hitta allar frænkurnar og þá sérstaklega Jónu Sverris sem flestar okkar sjá allt of sjaldan. En talandi um hana Gunnu, þá er erfitt að ímynda sér að hún sé orðin 82 ára!!!!! Hún minnir okkur á að ef að maður er ungur í anda og fylgist með þá er lífið framundan bara skemmtilegt! Takk elsku Gunna
Það verður erfitt að toppa þetta boð, en við ættum endilega að gera þetta oftar.
Kveðja til allra, Peta
P.s. Hún Íris mín er ófrísk og á að eiga um miðjan september og ég er svo spennt að verða amma að ég get varla beðið
Ættarmóti aflýst
1.6.2008 | 23:17
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ættarmót
13.5.2008 | 18:21
Kæru ættingjar
Nú er fyrirhugað ættarmót afkomenda Guðmundar Kr. Guðmundssonar og Sigurjónu Jónasardóttur í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði helgina 4-6 júlí '08.
Þar sem staðfesta þarf pöntun á húsnæðinu fyrir 1. júní þá þurfið þið kæru ættingjar að bregðast fljótt við og skrá þátttöku ykkar. Gott væri ef þið senduð email á hkonny@simnet.is eða hringið í síma 461-2913 gsm.844-5768.
(Gunna, Marta Bíbí, Helga, Veiga, Gunnsi og Bergljót Birna f.h Bóa)
Ég sendi ykkur þetta bréf og óska eftir að þið kannið hug ykkar fólks og tilkynnið hversu margir ætla að mæta.
Hlakka til að heyra í ykkur og allar tillögur um skemmtilegheit vel þegnar.
Allar nánari upplýsingar verða á fjölskylduheimasíðunni þegar nær dregur.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fermingar 2008
24.3.2008 | 20:34
Þetta árið fermast:
Ólafur Ágúst hans Gumma Kr. 24. apríl í Fríkirkjunni í Hafnarfirði - Friðrikka hennar Geirnýjar 1. júní í Langholtskirkju - Oddný María dóttir Hildar hans Stebba 2. mars.
Til hamingju
Færsla: Elfa færði inn
Vinir og fjölskylda | Breytt 7.4.2008 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtug í dag - til hamingju elsku systir
20.2.2008 | 09:55
Hrafnhildur Konný Hákonardóttir er fimmtug í dag, 20 febrúar.
50 ÁRA ! húrra, húrra....
Þúsund kossar og knús - hittumst á laugardaginn..
systkynin
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
STÓRAFMÆLI Í FJÖLSKYLDUNNI
18.2.2008 | 22:23
Við óskum Þórunni Finnsdóttur sálfræðingi hjartanlega til hamingju með árin 50.
Megi hún lengi lifa!!! Og blómstra í sínu starfi!!!
Til hamingju Dobba okkar!
MINNING
8.2.2008 | 01:37
8-feb-08
Í dag hefði móðir mín elskuleg orðið 80 ára hefði hún lifað.
Á þessari mynd er hún 35 ára og búin að eiga okkur 6 systurnar.
KV. AH
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hákon Bjarnason 80 ára
7.2.2008 | 22:02
Helgina 1-3 mars fórum við Heiðar til Ísafjarðar til að samgleðjast pabba á stórafmæli hans. Ferðin gekk vel og nutum við fegurðar vetrarins í fannhvítum fjöllum og dölum. Pabba líður mjög vel í sínu vinalega umhverfi þar sem hann fær notið sín við að mála og teikna það sem honum er hugleiknast, sjóinn- fjörðinn með háum fjöllum og fjölda veiðiskipa. Hann bað að heilsa og sendir öllum hlýtt faðmlag og koss. Sjá myndaalbúm