Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Afmælisboð frá Jónu Sverris

Hæ hæ kæra fjölskylda!!! Hún Jóna Sverris var að hafa samband við mig og biðja mig um að koma á framfæri að í tilefni af fimmtugs afmælinu sínu ætlar hún að bjóða okkur fjölskyldunni á tónleika í Bústaðakirkju laugardaginn 11. apríl kl.16 og er aðgangur að sjálfsögðu ókeypis. Blóm og gjafir eru alveg bannað en þeim sem vilja gleðja Jónu eru bent á að styrkja annaðhvort MND félagið (banki 1175, hb. 05, reikn. 410900, kt. 630293-3089) eða MS félagið (reikningur í Landsbanka nr. 0115-26-102713 - kt. 520279-0169). Mætum öll og samgleðjumst Jónu á þessum stóru tímamótum :) Kær kveðja, Elfa

Peta orðin amma

Já Peta orðin amma og ekkert smá stolt Smile Íris átti lítinn yndislegan strák 6. september og var hann tæpar 12 merkur og 49 cm. hann kom reyndar í heiminn 15 dögum fyrir tímann en er samt rosa duglegur og sterkur eins og sannur vestfirðingur. Þið getið skoðað litla prinsinn á heimasíðunni hans eythorsson.barnaland.is  Ég sendi aðgangsorðið að síðunni í pósti til ykkar og munið að kvitta í gestabókina, það er svo skemmtilegt að fá kveðjur Smile

Kv. Elfa


Gunna frænka

Mikið er ég ánægð með framtakið hennar Gunnu sl. laugardag þar sem við hittumst í hádegisverði frænkurnar. Þetta var allt svo smart hjá henni og alveg æðislegt að hitta allar frænkurnar og þá sérstaklega Jónu Sverris sem flestar okkar sjá allt of sjaldan. En talandi um hana Gunnu, þá er erfitt að ímynda sér að hún sé orðin 82 ára!!!!! Hún minnir okkur á að ef að maður er ungur í anda og fylgist með þá er lífið framundan bara skemmtilegt! Takk elsku Gunna Heart

Það verður erfitt að toppa þetta boð, en við ættum endilega að gera þetta oftar.

Kveðja til allra, Peta

P.s. Hún Íris mín er ófrísk og á að eiga um miðjan september og ég er svo spennt að verða amma að ég get varla beðið Smile


Ættarmóti aflýst

 

Rauðhetta og Úlfurinn 

Fyrirhuguðu ættarmóti aflýst vegna ónógrar þátttöku.  Frown


Ættarmót

 

Kæru ættingjar

amma og afi

Nú er fyrirhugað ættarmót afkomenda Guðmundar Kr. Guðmundssonar og Sigurjónu Jónasardóttur í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði helgina 4-6 júlí '08.

Þar sem staðfesta þarf pöntun á húsnæðinu fyrir 1. júní þá þurfið þið kæru ættingjar að bregðast fljótt við og skrá þátttöku ykkar.  Gott væri ef þið senduð email á hkonny@simnet.is eða hringið í síma 461-2913 gsm.844-5768.

(Gunna, Marta Bíbí, Helga, Veiga, Gunnsi og Bergljót Birna f.h Bóa)

Ég sendi ykkur þetta bréf og óska eftir að þið kannið hug ykkar fólks og tilkynnið hversu margir ætla að mæta.

Hlakka til að heyra í ykkur og allar tillögur um skemmtilegheit vel þegnar.

Allar nánari upplýsingar verða á fjölskylduheimasíðunni þegar nær dregur.

http://isozone.blog.is/

 


Fermingar 2008

Þetta árið fermast:

Ólafur Ágúst hans Gumma Kr. 24. apríl í Fríkirkjunni í Hafnarfirði - Friðrikka hennar Geirnýjar 1. júní í Langholtskirkju - Oddný María dóttir Hildar hans Stebba 2. mars.

Til hamingju Smile

Færsla: Elfa færði inn


Fimmtug í dag - til hamingju elsku systir

Hrafnhildur Konný Hákonardóttir er fimmtug í dag, 20 febrúar.

 

    

50 ÁRA ! húrra, húrra....

Þúsund kossar og knús - hittumst á laugardaginn..

systkynin 

 


STÓRAFMÆLI Í FJÖLSKYLDUNNI

 

DOBBA

Við óskum Þórunni Finnsdóttur sálfræðingi hjartanlega til hamingju með árin 50.

Megi hún lengi lifa!!! Og blómstra í sínu starfi!!!

Til hamingju Dobba okkar!


MINNING

MAGGA

8-feb-08

Í dag hefði móðir mín elskuleg orðið 80 ára hefði hún lifað.

Á þessari mynd er hún 35 ára og búin að eiga okkur 6 systurnar.

KV. AH

http://simnet.is/dimmalimm/

welcome4

 


Hákon Bjarnason 80 ára

Myndir 2007-2008 595

Helgina 1-3 mars fórum við Heiðar til Ísafjarðar til að samgleðjast pabba á stórafmæli hans.  Ferðin gekk vel og nutum við fegurðar vetrarins í fannhvítum fjöllum og dölum.  Pabba líður mjög vel í sínu vinalega umhverfi þar sem hann fær notið sín við að mála og teikna það sem honum er hugleiknast, sjóinn- fjörðinn með háum fjöllum og fjölda veiðiskipa.  Hann bað að heilsa og sendir öllum hlýtt faðmlag og koss. Sjá myndaalbúm


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband