Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Frábær frammistaða - takk fyrir fræknu frænkur
7.1.2007 | 19:04
Við vorum að koma heim, ég og guttinn, ég úttroðinn af dýrindis hnallþórum og súkkulaði, og Bjarni Haukur einni barnatönninni fátækari, en hún hrökk úr með aðstoð sykurmola í hita leiksins.
Ég verð nú að segja að maður fattaði það loksins þegar maður var mættur, hvað maður hefur saknað margra (allra!) og hvað það er nú gott fyrir sálartetrið að finna hvað maður er nú ríkur í raun og veru. Ég vil nota þennan nýstofnaða vettvang til að hvetja stórfjölskylduna í að gera þetta að árvissum viðburði, hvort sem yfirskriftin verði sú Ísfirska hefð: Sólarkaffi, eða bara hvað sem er.. aðalatriðið er að hittast og hafa gaman af.
Fræknu frænkurnar síbrosandi fá svo sérstakan plús fyrir framtakið - það er allveg með ólíkindum hvað þessar skvísur geta gert þegar þær taka höndum saman...
Takk fyrir mig og mína
Bjarni "stóri"
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Myndir af fjsk.
5.1.2007 | 19:13
Takk fyrir Elfa, frábært að sjá þessar myndir sem komnar eru.Verður gaman þegar aðrir meplimir taka við sér, ekki ég verð að fá smákennslu, en bráðum. Hjödda
Vinir og fjölskylda | Breytt 13.1.2007 kl. 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Metþátttaka á Jólaballi
4.1.2007 | 16:54
Fyrsta bloggfærsla
4.1.2007 | 16:16
Hæ frændur og frænkur. Velkomin á fjölskyldubloggið. Ákvað að tékka á mogga blogginu og finnst kerfið þeirra mun betra en á blogcentral. Hér er miklu auðveldara að setja inn myndir o.fl. og stillingar skýrari. Vona að allir séu sáttir við breytinguna. Ef þið lendið í vandræðum þá sendið mér póst. Kv. Elfa ebo@simnet.is P.s Lykilorð og notendanafn er sama og áður.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)