Jólaball eða Sólarkaffi ?
14.1.2007 | 14:55
Ég vil þakka ykkur öllum fyrir yndislega samveru á jólaballinu. Það kom fram tillaga frá mér um að breyta jólaballinu í sólarkaffi þar sem ég hafði heyrt að erfiðlega hefði gengið að fá fólk til að mæta um hátiðarnar. Við frænkurnar settumst niður að loknu jólaballi og ræddum þessa hugmynd og bárum hana saman við jólaballið. Rökin fyrir því að halda Jólaball er að það henti betur vegna þess að það sameinar alla fjölskyldumeðlimi óháð aldri. Það gefur okkur öllum ástæðu til að gleðjast og næra barnið í okkur með því að dansa kringum jólatréð, syngja og vera saman. Hvert er ykkar álit ?
Kærleikskveðjur Konný
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:11 | Facebook
Athugasemdir
Ég verð að segja að ég er enn á báðum áttum. Það væri alveg hægt að gera eitthvað skemmtilegt fyrir börnin þó við myndum halda sólarkaffi. Við gætum verið með ljóðalestur og samsöng og þá verið búnar að senda upplýsingar um hvaða lög ætti að syngja þannig að allir gætu verið með. Ég segi nú bara við Konný kunnum örugglega nokkur ráð til að gera sólarkaffi skemmtilegt fyrir börnin, jafnvel skemmtilegra en jólaball. Svo er líka málið að það er svo lítið af börnum á jólaballsaldri. Ég held við ættum aðeins að spá í þetta. Kv. Elfa
Fjölskyldublogg, 14.1.2007 kl. 19:37
Tengipunkturinn er Slétta.. Hvernig væri að hafa þetta eftir áramót og hafa árlega Sléttugleði ? Ég er fullviss að þessi hæfileikaríka ætt fer létt með að blanda saman skemmtum fyrir unga sem aldna þótt karlinn í rauða búningnum fái frí.
Aðalatriðið er að hafa vettvang til að hittast og sjá til þess að kynslóðirnar kynnist og haldi uppi merkinu þegar fram líður...
Sléttum úr klaufunum... Sól á Sléttu .....
Bk. Bjarni "von Slétta" Hákonarson
Fjölskyldublogg, 15.1.2007 kl. 21:48
Mér er í raun alveg sama hvort þetta er jólaball eða eitthvað annað, við erum svo heppin að vera með Konný og Elfu sem eru báðar leikskólakennarar og geta því örugglega leiðbeint okkur hvað börnin varðar, þannig að það ætti ekki að vera erfitt að gera eitthvað skemmtilegt sem höfðar til allra. Ég er sammála Bjarna að aðalatriðið er að hittast og í raun gæti verið skemmtilegra að fara í leiki, syngja saman osfrv. þannig að við kynnumst betur. Kv. Peta
Fjölskyldublogg, 16.1.2007 kl. 21:22
Mér var bent á að það væri erfiðara fyrir þá sem búa erlendis að koma á sólarkaffi eða eitthvað annað vegna tímasetningar. Það eru auðvitað meiri líkur á því að þeir aðilar geti frekar mætt á jólaball. Kv. Elfa
Fjölskyldublogg, 16.1.2007 kl. 22:11
jæja búin að læra á þetta blogg, svo nú er bara að svara öllum !!!!
Örugglega best að halda sig við jólaball eða ss milli 24des til 06 jan cirka vegna þeirra sem búa erlendis, við vorum að tékka á 29 des samkvæmt beiðni en hann er upptekinn því miður, hvaða dag á þá að ath ? kannski sunnudag 30des ? þurfum svo sem ekki að vera með jólasvein ef leikskólakennarar taka sig saman og finna skemmtilega leiki fyrir börn og fullorðin börn, rifja upp hlátur og gaman þegar rauðhetta og úlfurinn voru leikin af snilld á ættarmóti forðum daga :)
kv Hjödda
Fjölskyldublogg, 17.1.2007 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.