Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins

Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins haldið 26. janúar Hið víðfræga Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið með pompi og prakt þann 26. janúar næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar, sem haldin verður á Broadway, er glæsileg og verður endað á balli með Milljónamæringunum ásamt Páli Óskari og Ragga Bjarna. „Nú ætlum við að blása í alla herlúðra og ná saman stærri hópi en nokkru sinni fyrr“, segir m.a. í tilkynningu frá aðstandendum. Sú nýbreytni verður tekin upp að þessu sinni að árgangar eða félagasamtök geta tryggt sér sérborð kaupi þeir 10 miða eða fleiri í forsölu. Þá hefur Flugfélag Íslands sett upp nettilboð á flugi frá Ísafirði til Reykjavíkur þessa helgi og Hótel Park Inn Ísland verður með sérstakt tilboð fyrir gesti á Sólarkaffi.

Forsala aðgöngumiða fer fram á Broadway laugardaginn 20. janúar milli kl. 14 til 16 og síðan í miðasölu Boadway í síma 533 1100, en Sólarkaffið er eins og áður segir haldið á Broadway föstudaginn 26. janúar n.k, og opnar húsið kl. 20.

Sólarkaffið er að sjálfsögðu haldið til að fagna rísandi sól, en hinn eiginlegi sólardagur á Ísafirði er 25. janúar, en þá munu geislar sólar sleikja Sólgötu ef veður leyfir. Ísfirðingafélagið í Reykjavík hefur löngum samfagnað íbúum Ísafjarðar um þetta leyti árs.
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjölskyldublogg

Langar á sólarkaffi, hverjir ætla að fara? Gætum við ekki tekið okkur saman þannig að við fáum að velja gott borð, ath með systur og maka hvort þau ætli og vera kannski með 2 stór borð á góðum stað, láta nú heyra í sér, sendi mail á Ella og Geirný er með þeirra netfang og bið þau að ath sín megin með systur

Kv

Hjödda

ps Elfa getur þú sett upp færslu sem er eingöngu fyrir að skrá sig sólarkaffi ?

Fjölskyldublogg, 17.1.2007 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband