Afmælisdagur Ömmu Sigurjónu

amma og afi

Í dag hefði amma Sigurjóna orðið 104 ára.  En að öðru ég gleymi alltaf þessari blessaðri gestabók, var bara ekkert að spá í hana. Ég kíkti svo loksins í hana og sá nokkrar kveðjur og eins og Steina segir "húrra fyrir þeim sem skrifa í gestabókina".  Mig langar líka að benda ykkur á annan kost en hann er sá að skrifa athugasemdir við bloggfærslur, ég er ekki viss um að allir átti sig á þessu, en fyrir neðan bloggfærslu er lína þar sem einn möguleikinn er að skrifa athugasemd. Það eru meiri líkur á að fólk taki eftir athugasemd við bloggfærslu heldur en gestabók og það gerir þetta meira lifandi að fólk skiptist á skoðunum o.fl. í blogginu sjálfu, en þið megið samt ekki hætta að nota gestabókina munið bara eftir hinum kostunum líka.  Konný er t.d. með bloggfærslu þar sem hún biður um feedback, prófið þetta við færsluna hennar, velja athugasemd í línunni fyrir neðan færsluna og skrifa ykkar athugasemdir.  Ég sá að Steina var að biðja um leiðbeiningar um hvernig setja á inn myndir og ég skal senda leiðbeiningar með e-mail á morgun eða hinn.  Og gaman að sjá að Adda skrifaði í gestabókina, þið hin barnabörnin takið hana til fyrirmyndar Tounge

Kv. Elfa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjölskyldublogg

Sammála Elfa.  Endilega að nota athugasemdirnar til að byggja upp skemmtilega þræði.  Annað, ég var svo sannanlega stoltur að sjá hana Öddu mína á þessum vettvangi, og ég vonast til að sjá mikið til þeirra systra í framtíðinni..

bestu kveðjur
Bjarni "von Sletta"

Fjölskyldublogg, 15.1.2007 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband