Afi Konni biður að heilsa öllum !
15.1.2007 | 22:07
Afi Konni kom í heimsókn milli hátíðanna og hafði í nógu að snúast að heimsækja fjölskylduna og taka á móti gestum.
Ég var að heyra í karlinum og bað hann innilega að heilsa öllum og biður fyrir bestu kveðjur.
Þetta er góð mynd af þeim félögum, en þess má geta að Bjarni Haukur er með fingurna hans afa síns, alla vegana litlu puttana, en báðir eiga þeir það sameiginlegt að vera ramskakkir og efsta kjúkan vísar inn.. Þetta finnst afa Konna gaman að skoða og bera saman
kv. bjarni og bjarni
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:10 | Facebook
Athugasemdir
Ég verð nátturlega að byrja á því að segja að þetta er yndisleg mynd og ég held að hann Konni sé með flottasta hárið á landinu í sínum aldurshópi. Og ekkert smá sniðugt með fingurna á þeim, erfðirnar klikka ekki. Við biðjum að sjálfsögðu fyrir bestu kveðjur til Konna "bangsapabba". Elfa, Helga og Olli.
Fjölskyldublogg, 16.1.2007 kl. 17:05
Hann er alltaf flottur hann Konni, gaman að sjá mynd af þeim nöfnum. Kv. Peta
Fjölskyldublogg, 16.1.2007 kl. 21:23
Ég held að ég sé orðin eitthvað rugluð "nöfnum"?????
én þetta er falleg mynd. Kv. Peta
Fjölskyldublogg, 16.1.2007 kl. 21:32
Góðir saman, skilaðu kveðju til Konna afa frá Hjöddu
Fjölskyldublogg, 17.1.2007 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.