Dökkar yfirlitum og gullfallegar
4.4.2007 | 12:21
Halló aftur kæra fjölskylda..
Þær komust ekki áfram í keppninni, en ég verð nú að segja það sem stoltur faðir, að þær stóðu sig frábærlega og að mínu mati og ALLRA við nærliggjandi borð... Ég skil nú ekkert í þessum Arnari Laufdal !!! Ég held nú best að segja að hann sé litblindur á öðru og sjái ekkert með hinu ! (JÁ ég veit að ég er tapsár !!!)
En eins og ég sagði, þá get ég ekki verið stoltari að stelpunum mínum og bara það að taka þátt gera þær að sigurvegurum.. Til hamingju stelpur, og ég veit að restin af stórfjölskyldunni tekur undir það...
Vonandi sjáumst við á ættarmóti fljótlega ! - veit einhver um slík áform ? ... bk. bjarni
ps. fleiri myndir á http://picasaweb.google.com/bjarniha
_____________________________________________
Sæl kæra fjölskylda. Synd að ég skuli nú ekki hafa gert þennan pistil fyrr, en ég bara fattaði ekki að stúlkurnar mínar elstu, sem eru að taka þátt í Ungfrú Vestfirðir í kvöld, þurfa atkvæði greidd á netinu !!
Þeir sem lesa þetta fyrir kvöldið - endilega farið inn á http://ungfruisland.is/netkosning.php?idprel=30 og kjósið fallegustu Sléttustelpuna.. (þið getið líka sent vini og vinnufélögum linkinn :-) )
Kær kveðja
Bjarni "von Sletta"
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 25.4.2007 kl. 20:04 | Facebook
Athugasemdir
Bjarni þú ert ferlegur, ég er fyrst að sjá þetta kl. 00.30 þannig að við fjölskyldan gátum auðvitað ekki kosið. En mikið rosalega eru þessar frænkur fallegar, þær hljóta að rúlla þessu upp. Áfram Adda og Hulda!!!
Kv. Elfa og co.
Fjölskyldublogg, 5.4.2007 kl. 00:38
Til hamingju með fallegu stelpurnar þínar Bjarni minn.
Blondínur eru bersýnilega inn í ár en þínar eru fallegastar!!!!
En hafa ekki atkvæðin skiptst of mikið á milli þeirra (hefði ekki ein átt að keppa í einu?)
Bestu kveðjur! og aftur til hamingju með fallegu frænkurnar.
Auja
Fjölskyldublogg, 6.4.2007 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.