Hákon Bjarnason 80 ára
7.2.2008 | 22:02
Helgina 1-3 mars fórum við Heiðar til Ísafjarðar til að samgleðjast pabba á stórafmæli hans. Ferðin gekk vel og nutum við fegurðar vetrarins í fannhvítum fjöllum og dölum. Pabba líður mjög vel í sínu vinalega umhverfi þar sem hann fær notið sín við að mála og teikna það sem honum er hugleiknast, sjóinn- fjörðinn með háum fjöllum og fjölda veiðiskipa. Hann bað að heilsa og sendir öllum hlýtt faðmlag og koss. Sjá myndaalbúm
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Kæri Konni og fjölskylda!
Innilegar hamingjuóskir með afmælið!!
Gaman að sjá myndirnar af ykkur. Takk fyrir gamla góða tíma! Mig langar að setja hér inn mynd af Rósavendi en kann það bara ekki.
Bestu kveðjur!!
Auja og Frímann (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 23:11
Elsku Konni og fjölskylda! Hjartanlegar hamingjuóskir í tilefni 80 ára afmælisins. Mikið rosalega lítur hann Konni vel út, hann heldur sér vel karlinn
og mikið er gaman þegar fólk setur myndir í myndaalbúmið það gerir þetta svo miklu meira lifandi og skemmtilegra!
Afmæliskveðjur frá Elfu
Fjölskyldublogg, 8.2.2008 kl. 00:13
Elsku Konna fjölskylda. Til hamingju með Konna frænda:)
Knús til ykkar allra
Inga (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 09:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.