Nýjar myndir

Jæja ég er loksins búin að setja inn myndir af jólaballinu, gaman ef fleiri gera það Smile .  Fannst ykkur ekki gaman annars, ég skemmti mér konunglega. Gaman að kynnast ykkur frænkunum á annan hátt, við verðum endilega að hittast fljótlega, og gaman að sjá einhvern annan en mig og Hjöddu blogga, frábært Bjarni.  Kær kveðja. Elfa P.S. Ég breytti þemanu á síðunni og þið finnið myndaalbúm undir EFNI eða neðar á síðunni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjölskyldublogg

Ég er sammála Elfu, þetta var virkilega gaman. Ég er svo óvön blogginu en ætla að reyna að vera duglegri við að skrifa. Skemmtilegar myndir! Kv. Peta

Fjölskyldublogg, 10.1.2007 kl. 11:50

2 Smámynd: Fjölskyldublogg

Takk fyrir myndir Elfa, sammála að þetta var mjög gaman, og svo varð úr að við frænkur ætlum að hittast undir öðrum kringumstæðum og þegar eru komnar 2 tillögur sem unnið er að. Gott að vera komin í samband við alla aftur, vonandi taka fleiri frændur við sér og skoða síðuna og henda á okkur hin kveðju.

Hjödda

Fjölskyldublogg, 10.1.2007 kl. 15:27

3 Smámynd: Fjölskyldublogg

Elfa mín. Mér finnst frábært hvað þú ert dugleg að setja inn myndir og bara öll vinnan sem þú ert búin að leggja í þetta fjölskyldublogg. Manni verðu ljóst hvað við erum rosalega rík að eiga svona stóra og fallega fjölskyldu. Fleiri mættu tjá sig, finnst ég get þetta, þá geta allir þetta! Takk Kv. Peta

Fjölskyldublogg, 17.1.2007 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband