Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Smá kveðja
Sæl öll saman. Ég ákvað skella inn smá kveðju þar sem ég hef ekki heyrt frá svo mörgum í ættinni svo lengi. Ég varð fyrir svolitlum vonbrigum með það að ættarmótinu hafi verið aflýst. Ég var búin að taka helgina frá. En svona er það, vonandi getum við haldið ættarmót á næst ári, eða í náinni framtíð. En er ekki allt gott að frétta af flestum? kv. Hulda Bjarnadóttir
Hulda Bjarnadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 9. sept. 2008
Frábær síða Elfa
Þú átt hrós skilið, meiriháttar framtak. Orri
Orri (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 8. nóv. 2007
Til Öddu og systra
Gaman að heyra að þú mannst hvað þetta var gaman, vonandi verður alvara úr ættarmóti í ár Konný var að nefna það á jólaballinu, heyrum eitthvað um það vonandi fljótlega, kveðja til ykkar frá Hjöddu ( mamma Andreu)
Fjölskyldublogg, mið. 17. jan. 2007
Gleymdi einu...
Hvernig setjið þið myndirnar inn? ég er með nokkrar af jólaballinu. steina
Fjölskyldublogg, fös. 12. jan. 2007
Húrra fyrir Elfu
Loksins kíki ég inn. Er svo þreytt á tölv eftir vinnudaginn og nenni ekki að setjast yfir hana á kvöldin. Þetta verður skemmtilegt þegar ættingjar vorir verða virkir í að skrifa. Td. gaman að fá linur frá Öddu. Adda mín, skilaðu kveðjum vestur frá mér. Kv Steina
Fjölskyldublogg, fös. 12. jan. 2007
Gott framtak!
Mér lýst rosalega vel á þessa síðu og vona að við fjölskyldan getum farið að hittast meira! :) Man alltaf eftir skemmtilegu ættarmótunum og jólaböllunum þegar ég var yngri, og það væri svo sannarlega gaman að upplifa það aftur! Með bestu kveðju, Adda Bjarnadóttir
Adda Bjarnadóttir (Óskráður), fim. 11. jan. 2007
Jólaball 2006
Gaman að vera komin með bloggsíðu en ég er svo aftarlega í tækninni að ég verð sennilega að fá aðstoð til að byrja en þá stoppar mig ekkert með að vera með, en þangað til lítið. Hlakka til að sjá sem flesta á sunnudag 7 jan Hjödda frænka
Fjölskyldublogg, fös. 5. jan. 2007