Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Maí gefur lömbunum lífgrös og skjól

 

 Afmæli í Maí:

Jóna Finns.  5. maí - Hrannar Steinn hennar Ingu 5. maí - Jóna Sverris. 7. maí - Magnús Helgi hans Gumma 9. maí - Magnús Margeir hans Stebba 9. maí - Baldvin Kári hennar Jónu 10. maí - Íris hennar Petu 20. maí - Unnar hans Hemma 21. maí - Ólafur Ágúst hans Gumma 26. maí.  Til hamingju með afmælið öllsömul

Smile Heart Smile

Færsla: Elfa færði inn

Og vá hvað ég er sammála honum Bjarna, maðurinn hefur greinilega verið illa litblindur ef ekki bara blindur á báðum. Ég skoðaði myndirnar frá keppninni og það er bara rugl að þær hafi ekki verið í efstu sætunum.  Þið voruð stórglæsilegar Adda og Hulda og til hamingju frænkur með að hafa tekið þátt.

 


Dökkar yfirlitum og gullfallegar

Halló aftur kæra fjölskylda..

Þær komust ekki áfram í keppninni, en ég verð nú að segja það sem stoltur faðir, að þær stóðu sig frábærlega og að mínu mati og ALLRA við nærliggjandi borð...  Ég skil nú ekkert í þessum Arnari Laufdal !!!  Ég held nú best að segja að hann sé litblindur á öðru og sjái ekkert með hinu ! (JÁ  ég veit að ég er tapsár !!!)

En eins og ég sagði, þá get ég ekki verið stoltari að stelpunum mínum og bara það að taka þátt gera þær að sigurvegurum..  Til hamingju stelpur, og ég veit að restin af stórfjölskyldunni tekur undir það... 

Vonandi sjáumst við á ættarmóti fljótlega ! - veit einhver um slík áform ? ... bk. bjarni 

 

ps. fleiri myndir á http://picasaweb.google.com/bjarniha

 

_____________________________________________ 

Sæl kæra fjölskylda.   Synd að ég skuli nú ekki hafa gert þennan pistil fyrr, en ég bara fattaði ekki að stúlkurnar mínar elstu, sem eru að taka þátt í Ungfrú Vestfirðir í kvöld, þurfa atkvæði greidd á netinu !!  

Þeir sem lesa þetta fyrir kvöldið - endilega farið inn á http://ungfruisland.is/netkosning.php?idprel=30 og kjósið fallegustu Sléttustelpuna..  (þið getið líka sent vini og vinnufélögum linkinn :-)  )

 Kær kveðja

Bjarni "von Sletta"

adda   hulda

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband