Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
Gunna frænka
26.8.2008 | 10:26
Mikið er ég ánægð með framtakið hennar Gunnu sl. laugardag þar sem við hittumst í hádegisverði frænkurnar. Þetta var allt svo smart hjá henni og alveg æðislegt að hitta allar frænkurnar og þá sérstaklega Jónu Sverris sem flestar okkar sjá allt of sjaldan. En talandi um hana Gunnu, þá er erfitt að ímynda sér að hún sé orðin 82 ára!!!!! Hún minnir okkur á að ef að maður er ungur í anda og fylgist með þá er lífið framundan bara skemmtilegt! Takk elsku Gunna
Það verður erfitt að toppa þetta boð, en við ættum endilega að gera þetta oftar.
Kveðja til allra, Peta
P.s. Hún Íris mín er ófrísk og á að eiga um miðjan september og ég er svo spennt að verða amma að ég get varla beðið