Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Skráning ef áhugi er fyrir Sólarkaffi 26.jan

Var búin að biðja fjsk að láta vita ef áhugi er fyrir að geta pantað borð fyrirfram á Sólarkaffi, það þurfti að vera fyrir laugardag 20 jan, Í DAG, hefðum þurft að vera 10 eða fleiri til þess að fá að velja borð sjálf.

Allavega þá ætla ég að panta borð fyrir 10m og velja gott borð,  það verður á nafninu " Von Slétta " ef fólk fer til að kaupa miða, verður á Broadway og milljónamæringar með Ragga Bjarna og Páli Óskari eins og fram kom í annarri færslu.

Ef við verðum fleiri þá verður bara að bæta við borði en helst kaupa miða sem fyrst svo við getum haldið góðu borði.

" Von "  kveðja til allra

Hjödda


Afi Konni biður að heilsa öllum !

CIMG0381Afi Konni kom í heimsókn milli hátíðanna og hafði í nógu að snúast að heimsækja fjölskylduna og taka á móti gestum.

Ég var að heyra í karlinum og bað hann innilega að heilsa öllum og biður fyrir bestu kveðjur. 

Þetta er góð mynd af þeim félögum, en þess má geta að Bjarni Haukur er með fingurna hans afa síns, alla vegana litlu puttana, en báðir eiga þeir það sameiginlegt að vera ramskakkir og efsta kjúkan vísar inn.. Þetta finnst afa Konna gaman að skoða og bera saman

kv. bjarni og bjarni

 


Afmælisdagur Ömmu Sigurjónu

amma og afi

Í dag hefði amma Sigurjóna orðið 104 ára.  En að öðru ég gleymi alltaf þessari blessaðri gestabók, var bara ekkert að spá í hana. Ég kíkti svo loksins í hana og sá nokkrar kveðjur og eins og Steina segir "húrra fyrir þeim sem skrifa í gestabókina".  Mig langar líka að benda ykkur á annan kost en hann er sá að skrifa athugasemdir við bloggfærslur, ég er ekki viss um að allir átti sig á þessu, en fyrir neðan bloggfærslu er lína þar sem einn möguleikinn er að skrifa athugasemd. Það eru meiri líkur á að fólk taki eftir athugasemd við bloggfærslu heldur en gestabók og það gerir þetta meira lifandi að fólk skiptist á skoðunum o.fl. í blogginu sjálfu, en þið megið samt ekki hætta að nota gestabókina munið bara eftir hinum kostunum líka.  Konný er t.d. með bloggfærslu þar sem hún biður um feedback, prófið þetta við færsluna hennar, velja athugasemd í línunni fyrir neðan færsluna og skrifa ykkar athugasemdir.  Ég sá að Steina var að biðja um leiðbeiningar um hvernig setja á inn myndir og ég skal senda leiðbeiningar með e-mail á morgun eða hinn.  Og gaman að sjá að Adda skrifaði í gestabókina, þið hin barnabörnin takið hana til fyrirmyndar Tounge

Kv. Elfa


Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins

Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins haldið 26. janúar Hið víðfræga Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið með pompi og prakt þann 26. janúar næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar, sem haldin verður á Broadway, er glæsileg og verður endað á balli með Milljónamæringunum ásamt Páli Óskari og Ragga Bjarna. „Nú ætlum við að blása í alla herlúðra og ná saman stærri hópi en nokkru sinni fyrr“, segir m.a. í tilkynningu frá aðstandendum. Sú nýbreytni verður tekin upp að þessu sinni að árgangar eða félagasamtök geta tryggt sér sérborð kaupi þeir 10 miða eða fleiri í forsölu. Þá hefur Flugfélag Íslands sett upp nettilboð á flugi frá Ísafirði til Reykjavíkur þessa helgi og Hótel Park Inn Ísland verður með sérstakt tilboð fyrir gesti á Sólarkaffi.

Forsala aðgöngumiða fer fram á Broadway laugardaginn 20. janúar milli kl. 14 til 16 og síðan í miðasölu Boadway í síma 533 1100, en Sólarkaffið er eins og áður segir haldið á Broadway föstudaginn 26. janúar n.k, og opnar húsið kl. 20.

Sólarkaffið er að sjálfsögðu haldið til að fagna rísandi sól, en hinn eiginlegi sólardagur á Ísafirði er 25. janúar, en þá munu geislar sólar sleikja Sólgötu ef veður leyfir. Ísfirðingafélagið í Reykjavík hefur löngum samfagnað íbúum Ísafjarðar um þetta leyti árs.
 

 


Þorrablót

Hér koma upplýsingarnar um þorrablótið orðréttar frá félaginu:Kæru Sléttuhreppingar.Þorrablót verður haldið laugardaginn 20. janúar í Akóges- salnum að Sóltúni 3, Rvk. Verði er stillt í hóf að vanda eða 5000 kr.Ræðumaður verður Ævar Sigdórsson. “Leifarnar” úr Breiðbandinu munu skemmta gestum. Hljómsveit kvöldsins verður sem fyrr B.G. og  Margrét frá Ísafirði.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til: Halldóra 566-6743, Ólöf, 861-6679 Óli, 566-6500, Sigríður, 567-2311, Hagerup, 554-0519 í síðasta lagi miðvikudag 17. janúar.

Kv! Auja

Jólaball eða Sólarkaffi ?

Ég vil þakka ykkur öllum fyrir yndislega samveru á jólaballinu.   Það kom fram tillaga frá mér um að breyta jólaballinu í sólarkaffi þar sem ég hafði heyrt að erfiðlega hefði gengið að fá fólk til að mæta um hátiðarnar.  Við frænkurnar settumst niður að loknu jólaballi og ræddum þessa hugmynd og bárum hana saman við jólaballið.   Rökin fyrir því að  halda Jólaball er að það henti betur vegna þess að það sameinar alla fjölskyldumeðlimi óháð aldri. Það gefur okkur öllum ástæðu til að gleðjast og næra barnið í okkur með því að dansa kringum jólatréð, syngja og vera saman.  Hvert er ykkar álit ?

Kærleikskveðjur Konný


Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps.

Kæru frænkur og frændur.

Sléttublótið verður 20. janúar í AKOGEN salnum í Sigtúni (ekki 13. jan.) Ég hef hlerað að þar leiki fyrir dansi BG. Miðaverð er 5000 kr. Það þarf að kaupa miða fyrir miðja næstu viku, en auglýsingin er á leiðinni í pósti með frekari upplýsingar og fer þá beint hér innSmile Ég hleraði líka að veislustjóri verður Guðni Kolbeinsson íslenskufræðingur.

Kveðja! Auja


Nýjar myndir

Jæja ég er loksins búin að setja inn myndir af jólaballinu, gaman ef fleiri gera það Smile .  Fannst ykkur ekki gaman annars, ég skemmti mér konunglega. Gaman að kynnast ykkur frænkunum á annan hátt, við verðum endilega að hittast fljótlega, og gaman að sjá einhvern annan en mig og Hjöddu blogga, frábært Bjarni.  Kær kveðja. Elfa P.S. Ég breytti þemanu á síðunni og þið finnið myndaalbúm undir EFNI eða neðar á síðunni.

Frábær frammistaða - takk fyrir fræknu frænkur

CIMG0412-1Við vorum að koma heim, ég og guttinn, ég úttroðinn af dýrindis hnallþórum og súkkulaði, og Bjarni Haukur einni barnatönninni fátækari, en hún hrökk úr með aðstoð sykurmola í hita leiksins.

Ég verð nú að segja að maður fattaði það loksins þegar maður var mættur, hvað maður hefur saknað margra (allra!) og hvað það er nú gott fyrir sálartetrið að finna hvað maður er nú ríkur í raun og veru.  Ég vil nota þennan nýstofnaða vettvang til að hvetja stórfjölskylduna í að gera þetta að árvissum viðburði, hvort sem yfirskriftin verði sú Ísfirska hefð: Sólarkaffi,  eða bara hvað sem er.. aðalatriðið er að hittast og hafa gaman af.

Fræknu frænkurnar síbrosandi fá svo sérstakan plús fyrir framtakið - það er allveg með ólíkindum hvað þessar skvísur geta gert þegar þær taka höndum saman...

Takk fyrir mig og mína

Bjarni "stóri" 


Myndir af fjsk.

Takk fyrir Elfa, frábært að sjá þessar myndir sem komnar eru.Verður gaman þegar aðrir meplimir taka við sér, ekki ég verð að fá smákennslu, en bráðum. Hjödda


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband