Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
Metþátttaka á Jólaballi
4.1.2007 | 16:54
Hæ hæ! Í gær komu saman Hjödda, Peta, Erna og Elfa og fóru yfir stöðu mála varðandi þátttöku á jólaballi. Það lítur út fyrir að þátttaka verði mjög góð og hlökkum við til að hitta alla. Svona fyrir þá sem eru ekki með allt á hreinu þá verður ballið haldið í kiwanishúsinu í Kópavogi sunnudaginn 7. janúar kl. 15.30-18.00.
Fyrsta bloggfærsla
4.1.2007 | 16:16
Hæ frændur og frænkur. Velkomin á fjölskyldubloggið. Ákvað að tékka á mogga blogginu og finnst kerfið þeirra mun betra en á blogcentral. Hér er miklu auðveldara að setja inn myndir o.fl. og stillingar skýrari. Vona að allir séu sáttir við breytinguna. Ef þið lendið í vandræðum þá sendið mér póst. Kv. Elfa ebo@simnet.is P.s Lykilorð og notendanafn er sama og áður.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)